Skjár-1 tók upp tískusýningu með keppendum í Ungfrú Ísland í Bláa Lóninu s.l. sunnudag, þar sem þær sýndu vor- og sumartískuna frá Next í Kringlunni.
Nanna Ósk, listrænn stjórnandi keppninnar, stíliseraði sýninguna sem sýnd verður í beinni útsendingu Skjás-1 frá Fegurðarsamkeppni Íslands 24. maí. Og eins og oftast áður, var Lalli ljósmyndari á staðnum og smellti þessum myndum af stelpunum og fylgdarliði.
Hárgreiðslufólk frá Mojo og Salon Veh fylgdu stúlkunum eftir allan daginn og förðunina sáu stelpurnar í Gasa um með CEE snyrtivörum.
|