Ásdís Svava Hallgrímsdóttir, undirbýr sig nú á fullu fyrir MISS WORLD keppnina sem haldin verður í Varsjá í Póllandi 30. september n.k.
Við munum fylgjast með Ásdísi Svövu næstu daga, en í nógu er að snúast fyrir þetta tæplega 5 vikna ferðalag, en Ásdís fer til Póllands 1. september. Eins og alþjóð veit eigum við Íslendingar núverandi Miss World, Unni Birnu Vilhjálmsdóttur og hefur hún verið Ásdísi sérstakur ráðgjafi, en það eru ekki allir keppendur svo heppnir að fá ráðleggingar frá Ungfrú Heimi sjálfri! Ásdís mun leyfa ykkur að fylgjast með hér á síðunni, en einnig bendum við á heimasíðu keppninnar, www.missworld.tv . Meðfylgjandi myndir tók Lalli ljósmyndari um helgina af drottningunni.
|