 Ásdís Svava hefur haft í nógu að snúast að undanförnu við undirbúning fyrir MISS WORLD, en Ásdís fer til Póllands á föstudaginn, þar sem hún á eftir að dvelja næstu 5 vikurnar ásamt yfir 100 öðrum keppendum.
Lokakeppnin verður haldin í Varsjá 30. september og verður sýnd í beinni sjónvarpsútsendingu á SKJÁ-1.
Ásdís verður ekki eina íslenska stúlkan í Póllandi, því eins og alþjóð veit er núverandi MISS WORLD Unnur Birna Vilhjálmsdóttir og mun hún dvelja með stúlkunum fram að keppninni, þar sem hún krýnir arftaka sinn. Fleiri munu ferðast til Póllands, því forráðamenn Fegurðarsamkeppni Íslands og nánasta fjölskylda Ásdísar munu fara utan í lok september til að fylgjast með krýningunni og styðja við bakið á henni á lokasprettinum.
Lárus ljósmyndari hefur fylgt Ásdísi eftir við undirbúning síðustu daga og munum við sjá afraksturinn hér á síðunni næstu daga.
Einnig viljum við benda þeim sem vilja fylgjast með keppendum í Póllandi, á heimasíðu keppninnar www.missworld.tv
Meðfylgjandi eru myndir af Ásdísi á Salatbarnum þar sem hún hefur verið með annan fótinn að undanförnu til að geta ávallt fengið sér hollan og góðan mat á undirbúningstímanum www.salatbarinn.is
|