 Nú er búið að opna fyrir netkosningu í Miss World, www.missworld.com og www.globalbeauties.com, mikilvægt er að kjósa því net-og símakosning velja aðra af tveimur efstu stúlkum hverrar álfu inn í undanúrslitin!
En - hvernig heldur Ásdís sér í formi?
Þetta er eflaust spurning sem margir velta fyrir sér en svarið er afar einfalt - hreyfing og hollt mataræði eru þeir þættir sem vega þyngst ef fólk vill vera hraust og í góðu formi.
Ásdís æfir í World Class í Laugum og stundar trimform í Trimformi Berglindar ásamt því að fara í Aloe Vera vafninga, með þessu móti náði fegurðardísin okkar að koma sér í mjög gott form áður en haldið var til Póllands.
Hollt og gott mataræði skiptir líka sköpum og er galdurinn sá að borða holla fæðu í litlum skömmtum oft á dag, sjá ýmsa fróðleiksmola á www.worldclass.is og tengdum síðum. Ádsís er að sjálfsögðu fastagestur á Salatbarnum eins og fram hefur komið hér á síðunni en þar er einmitt alltaf að finna eitthvað hollt og gott, www.salatbarinn.is
Slökun er einnig nauðsynlegur þáttur í daglegu amstri og hefur Ásdís náð að slaka vel á í Baðstofunni í Laugum, www.laugar.com og í vatnsnuddi hjá Gunnu í Trimformi Berglindar, www.trimform.is
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir af Ásdísi í Baðstofunni, í dekri hjá Trimformi Berglindar og á Salatbarnum.
|