 Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, Ungfrú Heimur 2005 mun krýna næsta sigurvegara í Varsjá Í Póllandi á laugardaginn. Skjár-1 mun sýna beint frá keppninni og hefst útsendingin kl. 18:00.
Ásdís Svava Hallgrímsdóttir er fulltrúi Íslands í keppninni í ár og nú er að sjá hvort Íslendingar leggjast enn einu sinni á eitt og KJÓSA!
Eins og á síðasta ári er í gangi síma- og netkosning og sú stúlka sem verður efst í kosningunni tryggir sér rétt í undanúrsllitum sem annar fulltrúi sinnar álfu, en Ásdís Svava tilheyrir hópnum Norður-Evrópa. Netkosningin er á www.missworld.com og einnig er hægt að senda SMS í 1910 þangað til kl. 11:00 á laugardaginn, textinn er MW210 (númer Ásdísar).
Hér fyrir neðan koma svo myndir frá versluninni Kiss í Kringlunni en þar fékk Ásdís að velja allt það skart sem hún óskaði að fá lánað með til Póllands sem kom sér einstaklega vel fyrir drottninguna.
Sömuleiðis er að finna nokkrar myndir úr Baðstofunni í Laugum þar sem hægt er að sjá hluta af þeim O´neill bikiníum sem Ásdís tók með sér út.
|