Ásdís Svava Hallgrímsdóttir heldur áfram ferðalagi sínu um heiminn og er nú fulltrúi Íslands í keppninni Ungfrú Evrópa sem fram fer í Kiev þ. 27. október.
Ásdís Svava sem er nýkomin frá Varsjá í Póllandi, hélt til Kænugarðs laugardaginn 14.október, þar sem hún keppir við tæplega 40 stúlkur úr Evrópu um titilinn Miss Europe 2006. Keppnin sem sýnd er í sjónvarpi víða um heim, verður haldin í "Concert Hall of Ukraine" og verður umgjörðin sérlega glæsileg. Keppendur munu njóta lystisemda Úkraínu á undirbúningstímanum, gista á glæsilegu fimm stjörnu hóteli í miðborg Kiev sem búið er öllum hugsanlegum þægindum. Meðal dómara í keppninni er tískuhönnuðurinn Roberto Cavalli. Sigrún Bender var fulltrúi Íslands á síðasta ári í keppninni og komst þá í 12 stúlkna úrslit.
|