Linda komst í úrslit!

Keppninni Miss Model Of The World var að ljúka í Window Of The World í Shenzhen í Kína.  Linda Benediktsdóttir sem keppti fyrir Íslands hönd komst í 30 stúlkna úrslit og hlaut auk þess titilinn "Miss Model of Best Skin" sem var einn af aukatitlum keppninnar.  May Di Song,  fulltrúi Kína sigraði.


Í dag 15. desember var keppninni birt stigagjöf dómnefndarinnar og samkvæmt henni lenti Linda í 12. sæti í keppninni, ekki slæmt!  Alls tóku 55 stúlkur þátt í Miss Model Of The World.