 Jón Gunnlaugar Viggósson, Herra Ísland síðasta árs hélt í morgun til Kína, þar sem hann mun taka þátt í keppninni Herra Heimur 2007. Meðfylgjandi myndir voru teknar í vikunni þegar undirbúningurinn stóð sem hæst, en m.a. heimsótti hann NEXT í Kringlunni sem studdi hann rausnarlega með fatnað. Fegurðarsamkeppnin vill þakka Next, Sportís, World Class og Trimformi Berglindar fyrir stuðninginn.
Keppnin fer fram 31. mars og munum við fylgjast með Gulla hér á síðunni næstu vikurnar. Einnig viljum við benda á heimasíðu keppninnar www.mrworld.tv
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, Ungfrú Heimur 2005 mun sitja í dómnefnd keppninnar sem fram fer í Sanya í Kína.
|