Rebekka Pálsdóttir er Ungfrú Suðurland 2007

Rebekka Pálsdóttir, tvítug stúlka frá Selfossi var valin ungfrú Suðurland í glæsilegu hófi á Hótel Selfoss í gærkvöldi.


í 2. sæti hafnaði Linda Baldursdóttir, 20 ára einnig frá Selfossi og í því 3. Stefanía Þorsteinsdóttir, 19 ára frá Vetsmannaeyjum.


Þessar þrjár stúlkur verða fulltrúar Suðurlands í Fegurðarsamkeppni Íslands 25. maí.


 


Stefanía var einnig kosin netstúlka keppninnar,  Sportstúlka var valin Jórunn Elva Guðmundsdóttir, besta ljósmyndafyrirsæta hópsins Þórey Richardt Úlfarsdóttir og stúlkurnar völdu sjálfar Lovísu Ýr Guðmundsdóttur vinsælustu stúlkuna úr hópnum.