Ungfrú Reykjavík 2007

Fegursta stúlka Reykjavíkursvæðisins 2007 verður krýnd á Broadway fimmtudaginn 12. apríl n.k. þegar Jóna Kristín Heimisdóttir, ungfrú Reykjavík 2006 krýnir nýja drottningu laust fyrir miðnætti.


Skjár-1 sýnir beint frá keppninni, en það eru 18 stórglæsilegar stúlkur sem keppa um titilinn að þessu sinni. 


Listrænn stjórnandi keppninnar er Yesmine Olsson.


 


Húsið opnar kl. 19:30 fyrir matargesti en tekið er á móti gestum með fordrykk og síðan snæddur 3ja rétta glæsilegur kvöldverður.


Kynnir kvöldsins og veislustjóri er Gunnlaugur Helgason.


Miðasala og borðapantanir á Broadway s. 533-1100.


Meðf. myndir voru teknar á æfingu í vikunni af ljósmyndara keppninnar Lalla Sig.