Ungfrú Reykjavík 2008

Fegursta stúlka Reykjavíkursvæðisins 2008 verður krýnd á Broadway föstudaginn 25. apríl n.k. þegar Fanney Lára Guðmundsdóttir, Ungfrú Reykjavík 2007 krýnir nýja drottningu laust fyrir miðnætti.



Skjár-1 muna sýna beint frá keppninni að vanda en 20 stórglæsilegar stúlkur keppa að þessu sinni um titilinn. Keppnin er sú síðasta í röð undankeppna um allt land fyrir Fegurðarsamkeppni Íslands sem fram fer föstudaginn 30. maí í vor.


Miðasala hefst þriðjudaginn 25.mars nk. Miðaverð í mat og krýningu er kr.5.900,-

Tekið verður á móti gestum með fordrykk í boði Captain Morgan.

Matseðill kvöldsins

Geitaostur með trufflusveppaolíu og pestó
*
Andabringa Orange
*
Deserttvenna
Cremê Brulê & Volg súkkulaðikaka með jarðarberjum