Ungfrú Ísland 2008

Fegursta stúlka Íslands 2008 verður krýnd á Broadway föstudaginn 30.maí n.k. þegar Jóhanna Vala Jónsdóttir, ungfrú Ísland 2007 krýnir nýja drottningu laust fyrir miðnætti.

Skjár-1 muna sýna beint frá keppninni að vanda en 21 stórglæsilegrar stúlkur keppa að þessu sinni um titilinn.

Stúlkurnar hafa undanfarið keppst við að koma sér í sem best form fyrir keppnina, fengið leiðsögn varðandi þjálfun og mataræði hjá þeim Dísu og Fríðu Rún í World Class. Mojo sér um hár keppenda, og förðunarfræðingar Óm sjá um förðunina. Heilsa og Fegurð gefur stúlkunum LCN naglaásetningu, Snyrtistofan Fegurð býður þeim í brúnkusprautun auk þess sem þeim er boðið uppá tíma í Trimformi Berglindar.

Það er snillingurinn Yesmine Olsson sem er listrænn stjórnandi keppninnar, og kynnar kvöldsins eru Jónsi í svörtum fötum og Svavar Örn. Framkvæmdastjóri keppninnar er Arnar Laufdal og honum til aðstoðar er Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir.

Dagskráin verður fjölbreytt og glæsileg skemmtiatriði í boði, tekið verður á móti gestum með fordrykk í boði heildv. Karls. K. Karlssonar kl. 19:00 en matseðill kvöldsins er svohljóðandi:

Koníaksbætt humarsúpa með grilluðum humarhala.
Mohito krapís
Kálfasteik m/portobello
Prinsessudesert að hætti hússins



Dómnefnd skipa;

Arnar Laufdal (framkvæmdarstjóri og eigandi Fegurðarsamkeppni Íslands)
Björn Leifsson (World class)
Guðrún Möller ( fyrrum fegurðardrottning)
Heiðar Jónsson (snyrtir)
Karl Berndsen (stílisti)
Manúela Ósk Harðardóttir (fyrrum fegurðardrottning)
Valgeir Magnússon (Framkvæmdarstjóri Pipar auglýsingastofu)