Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, Ungfrú Heimur 2005 mun krýna Fegurðardrottningu Reykjavíkur 2006 á Broadway fimmtudaginn 30. mars n.k. Skjár-1 muna sýna beint frá keppni 19 stórglæsilegra stúlkna um hver varður valin fegursta stúlka Reykjavíkursvæðisins, og ljóst er að ekki verður auðvelt að velja arftaka Unnar Birnu. Keppnin er sú síðasta af undankeppnum fyrir Fegurðarsamkeppni Íslands sem fram fer miðvikudaginn 24. maí.
Stúlkurnar hafa frá áramótum keppst við að koma sér í sem best form fyrir keppnina, fengið leiðsögn varðandi þjálfun og mataræði undir stjórn Dísu í World Class, hárið verið klippt og litað af fagfólki Mojo og Salon Veh. Þær fá einnig LCN neglur frá Heilsu og Fegurð, brúnkusprautun hjá snyrtistofunni Fegurð, og tíma í Trimformi Berglindar en allt þetta er hluti af undirbúningnum. Heildverslunin Gasa sér um förðun með CEE snyrtivörum.
Kvöldið verður glæsilegt að vanda, stúlkurnar koma fram 4 sinnum áður en kýnd verður Fegurðardrottning Reykjavíkur 2006. Fyrst opna þær kvöldið með listilegu atriði, koma fram í tískusýningu frá Next í Kringlunni, á O´Neill baðfötum og að síðustu í síðkjólum sem stúlkurnar hafa valið sér sjálfar. Einnig verður boðið upp á glæsileg skemmtiatriði. Nanna Ósk Jónsdóttir er listrænn stjórnandi sýningarinnar og sér um sviðsþjálfun keppenda, henni til aðstoðar er Guðrún Inga Torfadóttir. Skipulag og annar undirbúningur er í höndum Elínar Gestsdóttur og Berglindar Hreiðarsdóttur. Kynnar kvöldsins eru Sigrún Bender og Bjarni Ólafur Guðmundsson.
Símakosning verður í gangi og munu 5 efstu stúlkurnar úr henni vinna sér inn þátttökurétt í Fegurðarsamkeppni Íslands í vor.
Húsið opnar kl. 19:30 þar sem tekið verður á móti gestum með fordrykk í boði heildv. Karls. K. Karlssonar og síðan verður snæddur glæsilegur kvöldverður;
Grillaður saltfiskur á eggaldinsalsa
og risahörpuskel með rucolapesto
*
Spínatfylltar kjúklingabringur
með suðrænum hrísgrjónum "exotic"
og glóaldinsósu
*
Marineraðir ferskir ávextir ávextir
í súkkulaðikörfu með hindberjakrapísís
Dómnefnd skipa; Arnar Laufdal, veitingamaður á Broadway og eigandi Fegurðarsamkeppni Íslands, Hafdís Jónsdóttir (Dísa í World Class), Kristján Þorvaldsson, ritstjóri Séð & Heyrt, Sverrir Berg Steinarsson eigandi Next, og Elín Gestsdóttir framkvæmdastjóri Fegurðarsamkeppni Íslands.
|