Vegna ummæla Ólafs Geirs Jónssonar í fjölmiðlum um helgina, vill Fegurðarsamkeppni Íslands taka fram:
Þann stutta tíma sem Ólafur Geir hefur borið titilinn Herra Ísland, höfum við þurft að áminna hann ítrekað. Strax í byrjun desember var honum send skrifleg áminning þar sem honum er m.a. bent á tiltekið brot á samningnum, en þrátt fyrir allt tiltal hefur hann hunsað að koma og hitta okkur forsvarsmenn keppninnar og virt að vettugi þær athugasemdir sem hafa verið gerðar.
Málið snýst alls ekki eingöngu um marg umræddan sjónvarpsþátt eins og gefið er í skyn, hins vegar endurspeglar þátturinn vel hvað Ólafur Geir er að fást við. Þegar hann var valinn til þátttöku í keppninni var hann með þátt á heimasíðu sinni, og eftir að hann var valinn Herra Ísland í símakosningu, var honum bent á að við þyrftum að fara vel yfir þau mál þar sem til stóð að þátturinn færi til sýninga í sjónvarpi, og þá undirstrikuð ákvæði samningsins um að hegðun hans sem Herra Íslands þyrfti ávallt að vera til sóma.
Við viljum síður þurfa að birta það sem okkur hefur farið á milli frá því í lok nóvember,en að svipta hann titlinum er að sjálfsögðu síðasta úrræðið sem við höfum, en Fegurðarsamkeppni Íslands leitast við ár hvert að velja fulltrúa ungs fólks í landinu sem bera titlana Ungfrú Ísland og Herra Ísland, hafa heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi og hægt er að taka til fyrmyndar. Ólafur Geir uppfyllti ekki þessi skilyrði.
Fegurðarsamkeppni Íslands Elín Gestsdóttir Arnar Laufdal
|