19 stúlkur keppa um titilinn Ungfrú Reykjavík 2006

Búið er að velja keppendur til þátttöku í keppninni um titilinn Ungfrú Reykjavík 2006 en keppnin fer fram þann 30.mars næstkomandi á Broadway, að loknum undankeppnum í öðrum landshlutum.



Keppendur sem koma af öllu Reykjavíkursvæðinu eru í ár 19 talsins og hafa aldrei verið fleiri, enda fjöldi umsækjenda hátt á annað hundrað.


Ungfrú Reykjavík verður sú síðasta af undankeppnum fyrir Ungfrú Ísland og eru dagsetningar keppnanna á landsbyggðinni eftirfarandi:


Ungfrú Suðurland - 10.mars


Ungfrú Suðurnes - 11.mars


Ungfrú Norðurland - 18.mars


Ungfrú og Herra Vesturland - 25. mars


Við komum sömuleiðis til með að kynna alla keppendur á landsbyggðinni hér á heimasíðunni þegar nær dregur en hér koma nokkrar myndir af stúlkunum í Ungfrú Reykjavík þegar þær hittust síðustu helgi í World Class Laugum og voru það að sjálfsögðu þær Dísa og Fríða Rún sem lögðu þeim línurnar varðandi mataræði, hreyfingu og heilbrigði.