Unnur Birna valin MISS WORLD 2005

Unnur Birna var kosin MISS WORLD laugardaginn 10. des, en keppnin fór fram í Sanya í Kína og var sjónvarpað beint um allan heim.   Við óskum Unni Birnu hjartanlega til hamingju. Unnur Birna kemur heim á laugardaginn 17. desember og býður Fegurðarsamkeppnin til móttökuhátíðar í Smáralind kl. 17:00. 


Næsta ár mun verða mjög annasamt sem MISS WORLD og mun Unnur Birna ferðast til a.m.k. 30 landa og safna fé til góðgerðarmála fyrir keppnina.



Ótrúlega mikið sjónvarpsáhorf:
Samkvæmt upplýsingum á netsíðu MISS WORLD þá var áætlaður áhorfendafjöldi á keppnina um tveir milljarðar í 207 löndum. 
Frábær fulltrúi:
MISS WORLD keppnin hefur nú fengið öflugan liðsmann sem mun verða ungum stúlkum frábær fyrirmynd um allan heim. 



Fylgist nánar með Unni á eftirtöldum heimasíðum:


 


www.missworld.tv


www.mbl.is


www.ungfruisland.is


www.globalbeauties.com