 Fegurðardrottning Íslands, Unnur Birna Vilhjálmsdóttir lenti í Top-5 í Beach Beauty keppninni sem 102 keppendur Miss World keppninnar taka þátt í.
Dómararnir sem koma til með að velja fegurstu konu heims (Miss World 2005) völdu Miss Beach Beauty svo það er greinilegt að þeim líst vel á Unni Birnu og gerir þetta keppnina enn meira spennandi fyrir okkur Íslendinga en það var ungfrú Rússland sem var valin Miss Beach Beauty 2005 og vann sér þar með sæti í 15 stúlkna undanúrslitum.
Nú þurfa bara allir að vera duglegir að kjósa drottninguna okkar með því að hringja í síma 900-3007 (99kr atkvæðið) eða greiða atkvæði í netkosningu á www.missworld.tv og koma henni í undanúrslit í keppninni, þá er aldrei að vita nema Ísland komist í verðlaunasæti í Miss World að nýju!
ALLIR AÐ HRINGJA Í SÍMA 900-3007 núna!
|